mánudagur, september 17, 2007

ég blogga núna á www.lisabjork.bloggar.is
þú þarft lykilorð, sendu mér e-mail ef þú vilt lykilorðið,
kyss og knús
x
x
x

laugardagur, september 08, 2007

best að skella inn nokkrum línum. svo sem ekki mikið að frétta en mér tekst þó alltaf að pára eitthvað, enda oftast með renning þegar ég held ég hafi ekkert að skrifa um.
annars er þetta búinn að vera dagur slæmra frétta eiginlega. í fyrsta lagi er strákur að vinna með mér sem heitir joel. hann hefur ekki verið í vinnunni í viku, en hann er ári eldri en ég, tuttugu og tveggja. okkur var sagt að hann hefði fengið einhverskonar flogaveikikast síðustu helgi og væri í rannsóknum.
kastið lýsti sér þannig að hann vaknaði klukkan fjögur um nóttina og fannst hann ekki geta andað. hann ætlaði því að stíga á fætur en gat ekki með nokkru móti hreyft einn einasta lim. hann lá því þarna og fann hálsinn þrengjast og gat ekki einusinni kallað á hjálp, því sama hvað hann reyndi, hann hafði enga stjórn á líkama sínum.
fyrir 'tilviljun' vaknaði pabbi hans upp og fór inn í herbergið hans. skrítið með svona hluti. allavega, pabbi hans hringdi á neyðarlínuna og bíllinn kom. þegar bíllinn kom var hann farinn að froðufella og allur orðinn blár.
hann hefur ekki fengið kast síðan þá en hefur verið í stöðugum rannsóknum síðan. í ljós kom svo að hann er með heilaæxli! greyjið strákurinn. læknarnir sögðu við hann að hann þyrfti að bíða í þrjár vikur eftir aðgerð en hann sætti sig náttúrulega ekkert við það og heimtaði bara að fá meðferð, og það strax! þá fór einhver sérfræðingur í málið og skoðaði myndirnar úr heilaskannanum og gaf honum þær fréttir að hann væri ekki dauðavona, sem eru heldur betur góðar fréttir. enn er náttúrulega ekki komið í ljós hvort æxlið sé illkynja en ég krosslegg mína fingur!
hinar slæmu fréttirnar eru af fjölskyldu sammy. frændi hans og kona hafa verið gift í 8 ár og búin að reyna að eignast börn síðan fyrir þann tíma. loksins varð hún svo ólétt eftir glasafrjóvgun og meira að segja af tvíburum! í dag fæddi hún svo tvö lítil börn, sem bæði létust rétt eftir fæðingu! mér fannst svo hrikalegt að heyra þetta að ég fór bara að háskæla, svo sárt þegar fólk þráir eitthvað svona heitt og er búið undir það í níu mánuði, og svo er það algjörlega hrifsað úr örmum þess.
ég ætla þó ekki einungis að færa slæmar fréttir í þetta skiptið. góðu fréttirnar eru þær að ég er á leið til íslands! kem í stutta helgarheimsókn og sammy minn kemur með! það er þó ennþá nokkuð í að við komum, förum til parísar fyrst. sem minnir mig á það, fjórar vikur í paríííí! í þetta skiptið verðum við bara í reykjavík, þar sem við lendum um hádegisbil (á föstudegi) á keflavíkurvelli og erum farin um hádegisbil á sunnudegi. svo ef einhver veit um ódýrt gistiheimili eða íbúð, endilega láta mig vita!
heyrðu jé dúdda mía! gleymdi nú einu viðbjóðslegu! þeir sem hafa heimsótt mig vita nú hversu nálægt miðbænum ég bý, tekur mig um 5 mín að labba í mollið. í gærmorgun fannst lík fyrir utan mollið, ung kona sem hafði verið hrottalega myrt! helvítis djöfulsins viðbjóður og geðveiki hérna alltaf hreint!
svo fyndið með england. þó ég sé búin að búa hérna í meira en ár, er ég alltaf að læra eitthvað nýtt. best fannst mér þó um daginn þegar ég var að lesa blogg hjá einni kunningjakonu minni á íslandi og hún hafði komið til london í viku ferð. ótrúlegt að sjá hverskonar mynd fólk byggir sér á að vera hérna í viku. ég man hún talaði um hvað allt væri hrikalega dýrt hérna... DÝRT? býrðu ekki á íslandi?! hún hefur greinilega gert eins og meirihluti ferðamanna; farið á oxford street að versla! svo var hún að segja: 'það er sko ekki satt sem þeir segja: breskir karlmenn eru fallegir!' ég hélt að þjóðsagan væri um breskar konur (og er ég þeirri þjóðsögu frekar sammála, haha). Einnig sagði hún að það væru eintómir pöbbar hérna, engir almennilegir klúbbar. elskan, þú hefur greinilega haldið þig bara algjörlega við oxford og ekki kannski spurt landann. ef hún heldur að klúbbarnir séu á íslandi en ekki í london, o boy, you are wrong.
en jæja. ég er bara ein heima á laugardagskvöldi, sammy hjá frændfólkinu og ég að kúra mig undir sæng að fara að horfa á bourne ultimatum í rólegheitunum. vona að allir eigi gott kvöld og séu að rifna úr hamingju, við höfum það flest miklu betra en við gerum okkur grein fyrir.
kyss og knús
x x x

fimmtudagur, september 06, 2007

SNL - Digital Short - A Special Christmas Box *Uncensored Ve

justin timberlake er með það á hreinu hvað allar konur vilja í jólagjöf! karlmenn: leggið á minnið! LOL

sunnudagur, september 02, 2007

Britney Spears- Gimme More [ Official Full Length ] !!!!!!

tjah, ég er að fílaða!

mánudagur, ágúst 27, 2007

Mika - Big Girl (You Are Beautiful)

ég setti inn þetta myndband með tónlistarmanninum mika, lagið big girl (you are beautiful), skelfilegt lag! algjörlega skelfilegt! en ástæðan fyrir því að ég setti það hingað inn er sú að það var tekið upp hérna í croydon. fyrst á götumarkaðnum rétt hjá vinnunni minni, svo á rauðu brúnni að bíóinu, svo high street þar sem glitta má í primark, allders og mollin tvö, sem eru sitt hvoru megin við götuna. þeir sem hafa aldrei komið að heimsækja mig geta því fengið smjörþefinn af croydon, þó svo næturlífið sé snilld líka, broooos.

hér koma svo spurningar...

Rule: You are NOT ALLOWED to explain ANYTHING unless someonemessages you and asks.


Have you ever...?


Q: Kissed someone on your top friends--> true (myspace)
Q: Been arrested?--> false
Q: Kissed someone you didn't like?--> true
Q: You like someone?--> true
Q: Held a snake?--> false
Q: Been suspended from school?--> false
Q: Sang in the shower?--> true
Q: Sat on a roof top?--> true
Q: Been pushed into a pool with all your clothes on?--> false
Q: Broken a bone?--> false
Q: Shaved your head?--> false!!!
Q: Played a prank on someone?--> true
Q: Had/have a gym membership? --> true
Q: Shot a gun?--> false
Q: Donated Blood?--> false, en er á lista hér úti, hef bara aldrei drullað mér!! :-s


LAST PERSON


1. You hung out with? búin að vera með samma í allan dag að hanga.
2. Last person that texted you? vá, þetta stefnir í að vera leiðinlegur lestur! sammi var að texta að hann væri kominn heim hehe.
3. You were in a car with? sammiiiii
4. Went to the movies with? sammi haha
6. You talked to on the phone? charlie
8. You called? charlie
9. You messaged on myspace? sirrý held ég
10. You commented? örugglega sirrý
11. you laughed with: sammy
12. You hit? haha, hann heitir rass, eða az.
14 You miss? margir margir


WOULD YOU RATHER...


1. Eat or drink? bæði:-D
2. Be serious or be funny? er rosa mikið bæði
3. Drink whole or skim milk? in between, semi skimmed
4. Die in a fire or get shot? byssukúla frekar.


ANSWER TRUTHFULLY...


1. Sun or moon? tunglið, var svo fallegt í gærkvöldi, risastórt og virtist svooo nálægt. voða rómó
2. Winter or Fall? vetur, því þá styttist í sumarið.
3. Left or right? rétt, djók, hægri.
4. Sunny or rainy ? sólin
5. Black/white or color? litur.
6. Where do you live? croydon, london.
7.What's your favorite color? fjólublár, gull, grænn
8. Do you want to get married? já en samt ekkert eitthvað risa 'here comes the bride... here comes the groom dæmi, bara eitthvað lítið og krúttlegt.
9. Do you twirl your spaghetti or cut it? eiginlega bæði
10. Do You Cook? já! og eldaði geðsjúkann mat handa okkur sammy áðan, úff!
11. Current mood? bara gott sko, alltaf voðalega einmana þó þegar sammy er farinn


IN THE LAST 48HOURS HAVE YOU...


1. Kissed someone? joo
2. Been hugged? jooo
3. Had sex? joooo
4. Felt stupid? uuu nei ekki svo ég man.


já hemmi gunn, það lýtur allt út fyrir að ég hafi ekkert betra að blogga um en einhverjar spurningar. styttist óðum í parís, núna bara hvað... 38 dagar held ég hehe. róleg að telja niður. svo er ég að reyna að komast með í ferð í vinnunni til los angels sem verður farin í fyrstu helgina í desember. flug, hótel og 500 pund eyðslupeningur, en til að vinna þetta þarf maður að selja sem flest virgin sæti, og þetta er bara ferð fyrir þá sem eru búnir að byrja á þessu ári. við erum um 40, og fimm fá að fara. vona að það verði ég!


ég og sammy vorum svo að ákveða að fara til dubai á næsta ári. ég safna nefnilega flugmílum í vinnunni og nú þegar er ég komin með 288 flugmílur (1 míla jafngildir 1 pundi) og ég ætti ekki að þurfa nema um 300 í viðbót og þá er ég búin að borga fyrir flugin okkar og hann ætlar þá bara að borga fyrir hótelið. hlakka svo til, dubai er einn af þeim stöðum sem mig langar mest að heimsækja.


veit ekki hvort einhver man en við hrefna höfum talað um það á bloggunum okkar að það búi refur í götunni okkar. allavega, hann er alltaf eitthvað á vappinu hérna og er skíthræddur við fólk og þessvegna láta allir hann bara vera. heyrðu í gær vorum við charlie svo að hengja upp þvott hjá glugganum og sjáum við þá ekki rebba í garðinum okkar! og heyrðu, það er svona lítið dúkkuhús þar, þar lá hann ofan á í svona hreiðri!! það er aldeilis, bara rebbi sem býr í garðinum okkar!

jæja, hef ekki meira að segja. vonandi eru allir hressir og hamingjusamir!

kveðja frá london

x x x

sunnudagur, ágúst 19, 2007


ég get ekki sofið! er þokkalega pirruð á því, var vakandi til um 3 í nótt og var vöknuð um 9!! hvað á það að þýða?!

allavega, síðust tveir dagar eru búnir að vera æði!! sammy minn átti náttúrulega þrjátíu ára afmæli í vikunni og því vorum tókum við bæði okkur extra frídag og vorum í fríi á föstudaginn. hann vissi náttúrulega ekkert hverju hann átti von á því ég gaf aldrei neitt í skyn en svo kom hann hingað og ég gaf honum gjöfina hans.. ferð til parísar! greyjið var svo gáttaður og sagði bara stanslaust: i don't know what to say... svo hoppuðum við upp í leigubíl og fórum á veitingastað þar sem ég var búin að panta borð. á leiðinni hringdi hann í fjölskylduna sína og vini og sagði þeim hvað ég hefði gefið honum, gaman að gleðja hann svona. hann hótaði mér svo að ég ætti sko eftir að fá að upplifa þessa tilfinningu, hann ætlaði sko að hefna sín á mér, haha.

svo eftir matinn fórum við aðeins á einn pöbb en hann er svo gamall og vildi bara fara heim svo við vorum komin frekar snemma heim. í gær komu svo vinir hans hingað til croydon og hann hélt pínu afmæli hérna. fórum svo út, fengum okkur mat og héldum síðan á tigertiger. í heildina geggjaður dagur, ótrúlega gaman bara.

svona var kallinn minn myndarlegur á afmælisdaginn:



langsætastur

ég er að verða sturluð mig langar svo að komast til íslands! er mikið að pæla að koma fljótlega bara yfir eina helgi og vera bara í reykjavík. fer of mikill tími í það að ferðast norður ef ég kem bara í 2 nætur. fá þá vonandi að lúlla hjá diddu minni og sjá elskulegu börnin hennar, sérstaklega nýjustu viðbótina sem ég hef séð 2x á ævinni og hann er 9 mánaða!

litla sæta krúttrassgat!

þar sem ég er komin með sjónvarp er nú varla annað hægt en að detta inn í big brother. ótrúlegt hvað allir í englandi geta horft stranslaust á þetta. ég myndi aldrei meika að taka þátt í þessum þáttum, það eru myndavélar gjörsamlega allstaðar. ekkert prævasí, myndavélar á klósettinu, í sturtunni og barasta allstaðar. þau eru t.d. öll að klæða sig núna og myndavélin eltir þau bara... stelpa að skipta um nærur og myndavélin eltir hana bara! svo ef eitthvað gerist þá er það í öllum blöðum hérna, t.d. var einhver að ríða í sturtunni um daginn og maður bara heyrði ekki endann á því! en nóg um það!

mig langar geggjað mikið í nammi. ég er að spá í að fara út í búð og kaupa mér geggjað mikið nammi, hanga svo inni í allan dag og horfa á video og slaka á...! sounds good!!

en fyrst ætla ég að tala við elsku bestu erlu mína, nýbúin að tala við elsku bestu hrefnu. elska nútímatækni. og elska ykkur öll.

góðar stundir.

miðvikudagur, ágúst 15, 2007

já af hverju ekki að skella bara inn nokkrum línum?
ég er nú meiri snillingurinn. gerði STÓR mistök í vinnunni í dag. gerði reyndar mistökin fyrir löngu síðan eeeen þau komu í ljós í dag. fékk semsagt moldríkann kall sem þurfti að fara til bandaríkjanna og kanada. hann vildi fljúga beint út (ekkert stopp) og fara fyrst þangað, svo þangað, svo þangað og að lokum þangað. semsagt fjórir staðir, hótel á öllum stöðum og bílar á öllum stöðum. ekkert mál vinur (en ég mun ræna þig mörgum péningum). svo ég bjó til frábæra ferð handa honum, öll flug, hótel, bílar og skattar og hann sagði: vá, þetta er ódýrara en ég hélt! þá var ég nú pínu svekkt að hafa ekki grætt meira á kallinum, en ég græddi nú alveg rúm 500 pund, eða 70 þús kall.
svo hringdi kappinn í dag, lentur í new york. rosa gott flug, nema hvað, hann lenti á newark flugvellinum, eins og áætlað var, en ég bókaði hótel fyrir hann á jfk flugvellinum!!! það er ekki nema tveggja tíma akstur á milli og hann á flug klukkan 7 í fyrramálið! góður lísa! áður en ég hringdi í hann til að segja honum að hann yrði að borga fyrir nýtt hótel og ég gæti svo endurgreitt honum það þegar hann kæmi til baka, setti ég mig í daðursgírinn. svo hringdi ég í hann og reyndi eftir mesta megni að daðra og vera frábær og viti menn, hann sagði takk fyrir hjálpina! ohh, frábært maður. góð saga.
annars á minn elskulegi samuel afmæli í dag. þrjátíu ára gamall kallinn. eins og áður sagði vorum við búin að plana ferð til parísar saman og farin að hlakka þvílíkt til. síðan fór ég að pæla hvað ég ætti eiginlega að gefa honum í afmælisgjöf og ákvað fyrir rest að gefa honum bara ferðina. laug því næst að honum að það væri ekki nokkur leið fyrir mig að fá frí í vinnunni og því yrðum við að grafa þetta. hann var illa svekktur. en ég bókaði allt fyrir okkur þannig að við erum á leið til parísar í byrjun okt og ég get ekki beðið!! hvað það verður yndislegt að vera bara ein með honum, fjarri öllu öðru í parís, þó ekki lengur en eina helgi. ohh fullkomið bara.
annars er mest gott að frétta. er samt stanslaust með martraðir og er ekki nógu hrifin af því. alveg merkilegt samt, fæ þær ekki nema ég sé ein. ég vakina nú orðið á hverri nóttu, stundum oftar en einu sinni og er skíthrædd að dreyma einhvern óþverra. þetta er orðið svo slæmt að ég er farin að sofa með kveikt á sjónvarpinu mínu, ÉG sem sef alltaf í svartamyrkri.
æhj, það sem mig langar að blogga um er ekki við hæfi svo ég held það sé bara best að slá botninn í þetta hér og nú. blogga bara um það á leynibloggsíðunni minni sem ENGINN í þessum heimi veit um. bara svona eins og að hafa dagbók á netinu sem þú veist að enginn mun komast í. gott að geta losað sig við ýmsar hugsanir sem annar myndu festast í hausnum á mér og binda sig eins og spotti, hring, eftir hring þar til heilinn myndi bresta undan þrýstingi. þetta er svona eins og að leggja hugsanirnar á hilluna, ef svo má að orði komast.
jæja hafið þið það gott ástarpungsar. sendi öllum sem ég elska hlýjar kveðjur, sérstaklega í rjúpnasali í kópavogi. kyss og knús frá lísu.